Skilmálar
Síðast uppfært 10. nóvember 2026
Seljandi
Þessir skilmálar gilda um kaup í vefverslun BEARS á bears.is. Með því að ljúka pöntun samþykkir þú skilmálana.
- Seljandi
- Goat ehf.
- Kennitala
- 591120-1900
- Netfang
- bears@bears.is
Vörur
Við reynum að lýsa vörunum og sýna þær eins nákvæmlega og hægt er. Litir geta þó litið örlítið öðruvísi út eftir skjám, og kasmír er náttúrulegt efni þar sem smávægilegur munur getur verið á milli flíka.
Pantanir
Samningur kemst á þegar greiðsla hefur gengið í gegn og þú hefur fengið staðfestingu í tölvupósti með pöntunarnúmeri. BEARS áskilur sér rétt til að hætta við pöntun, til dæmis ef vara reynist uppseld eða ef verð eða vörulýsing var augljóslega rangt skráð fyrir mistök. Þá höfum við samband og endurgreiðum greiðsluna að fullu.
Verð og greiðsla
Öll verð eru í íslenskum krónum og eru endanleg verð til neytenda. Sendingarkostnaður bætist við og kemur fram í kassa áður en greitt er.
Greitt er með Blikk, þar sem greiðslan er millifærð beint af bankareikningi og staðfest í bankaappinu þínu. Kennitala og reikningsnúmer sem þú slærð inn eru send til Blikk til að stofna greiðsluna. BEARS geymir hvorki kortaupplýsingar né bankaupplýsingar.
Tilboð og afslættir
Tilboð og afslættir gilda á þeim tíma sem tilgreindur er á vefnum og reiknast í körfu og kassa áður en greitt er. Afsláttur reiknast af vörum en ekki af sendingarkostnaði. Ef vöru er skilað er endurgreitt það verð sem greitt var fyrir hana.
Afhending
Pantanir eru sendar með Dropp, annaðhvort á Dropp afhendingarstað sem þú velur eða heim að dyrum þar sem Dropp býður upp á heimsendingu. Pantanir eru að jafnaði afhentar Dropp innan 1–3 virkra daga frá greiðslu. Afhendingartími eftir það ræðst af Dropp, sem lætur vita með SMS þegar sendingin er tilbúin.
BEARS ber ábyrgð á vörunni þar til þú, eða sá sem þú tilnefnir, hefur tekið við henni. Ef sending skemmist eða týnist á leiðinni sendum við nýja vöru eða endurgreiðum.
Réttur til að hætta við kaup
Þú hefur 14 daga til að hætta við kaupin án þess að tilgreina ástæðu, í samræmi við lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Fresturinn byrjar að líða þegar þú hefur fengið vöruna afhenta. Láttu okkur vita innan frestsins með skýrri yfirlýsingu, til dæmis í tölvupósti, og við staðfestum móttöku. Hafðu samband á bears@bears.is.
Vörunni þarf að skila ónotaðri, óþveginni og með merkimiðum, innan 14 daga frá því að þú tilkynntir okkur um ákvörðunina. Þú berð kostnað af því að senda vöruna til baka nema um annað sé samið. Ef varan hefur verið notuð umfram það sem þarf til að skoða hana og máta, eins og gert væri í verslun, getur þú borið ábyrgð á þeirri verðrýrnun.
Við endurgreiðum vöruverðið og upphaflegan sendingarkostnað, miðað við ódýrasta sendingarmáta sem í boði var, innan 14 daga frá því að tilkynningin berst. Við getum þó beðið með endurgreiðslu þar til varan hefur skilað sér eða þú hefur sýnt fram á að hún hafi verið send til baka. Endurgreitt er með millifærslu.
Gallaðar vörur
Ef vara reynist gölluð skaltu hafa samband við okkur sem fyrst eftir að þú verður gallans var. Við bætum úr með nýrri vöru, viðgerð, afslætti eða endurgreiðslu eftir því sem við á og greiðum sendingarkostnað vegna gallaðrar vöru. Um réttindi kaupanda vegna galla fer samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup, þar á meðal um frest til að kvarta, sem er að jafnaði tvö ár frá afhendingu.
Eðlilegt slit og skemmdir sem rekja má til rangrar meðferðar, til dæmis þvotts sem ekki er í samræmi við umhirðuleiðbeiningar, teljast ekki galli.
Samskipti og kvartanir
Hafðu samband á bears@bears.is. Við svörum að jafnaði innan tveggja virkra daga. Ef okkur tekst ekki að leysa ágreining í sameiningu getur þú borið málið undir kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, kvth.is.
Persónuupplýsingar
Við notum upplýsingarnar sem þú gefur upp eingöngu til að afgreiða pöntunina þína. Nánar í persónuverndarstefnu okkar.
Óviðráðanleg atvik
BEARS ber ekki ábyrgð á töfum sem rekja má til atvika sem við ráðum ekki við, til dæmis náttúruhamfara, óveðurs eða truflana hjá flutningsaðila. Þetta takmarkar ekki lögbundin réttindi þín sem neytanda.
Breytingar, lög og varnarþing
Skilmálarnir geta breyst. Ný útgáfa er birt á þessari síðu og gildir um kaup sem gerð eru eftir birtingu. Um skilmálana gilda íslensk lög og rísi dómsmál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.